

Skotsýn er viðurkenntur umboðsaðili Fyrir


Það er okkur ánægja að tilkynna að Skotsýn hefur fengið opinberan heildsölusamning fyrir B. Rizzini á Íslandi.
B. Rizzini er þekkt fyrir nákvæmnisframleiðslu og framúrskarandi handverk, þar sem lögð er sérstök áhersla á gæði, smáatriði og fagurfræði.
Margir eigendur B. Rizzini byssa segja að miðað við verð og gæði upplifi þeir að byssurnar gefi tilfinningu fyrir hærri verðflokki en raun ber vitni. Heimasíðan verður uppfær fljótlega með myndum af vörum og upplýsingum.


Það er ánægja okkar að tilkynna að Skotsýn hefur fengið opinbert umboð fyrir Cadex Defence á Íslandi. Cadex er þekkt fyrir nákvæmnisframleiðslu og framsæknar lausnir í kappskotfimi, nákvæmnisskotfimi, sérsveitarvopnum og sérsmíðuðum tækjum fyrir fagfólk.
Hvert einasta stykki hjá Cadex fer í gegnum fjölþætt gæðapróf og ítarlegt prófunarferli áður en það yfirgefur verksmiðjuna. Þetta tryggir einstaka nákvæmni og áreiðanleika.
Með þessu verður í fyrsta sinn hægt að panta og kaupa frá Cadex Defence beint á Íslands með fullri þjónustu, ráðgjöf og ábyrgð í gegnum Skotsýn.
Um Skotsýn
Velkomin í Skotsýn – þar sem tækni og nákvæmni mætast!
Við leggjum áherslu á að bjóða eingöngu vörur sem hafa hlotið lof í óháðum prófunum og fengið frábæra dóma frá skotveiðimönnum og skotíþróttafólki um allan heim. Allur búnaður sem við veljum uppfyllir ströngustu kröfur um gæði, áreiðanleika og endingu.
Hvort sem þú þarft búnað til æfinga, keppni eða veiða geturðu treyst því að hjá okkur finnur þú úrval sem hefur verið prófað, metið og staðist væntingar þeirra bestu. Skotsýn býður upp á verkfæri fyrir byssusmiði, Fix It Sticks verkfærasett og Accu-Tac tvífætur fyrir veiðar og skotíþróttir.
